top of page
20241010 Valdimarsson55_DSC2233_edited.jpg

Emilía G. Mikaelsdóttir lögfr.

Emilía lauk BSc í Viðskiptalögfræði og ML gráðu frá Háskólanum á Bifröst með fyrstu einkunn. Lokaverkefni hennar til meistaragráðu fjallar um „Heimildir stjórnvalda til vinnslu og varðveislu persónuupplýsinga." Meðfram námi sínu hlaut hún viðurkenningu fyrir framúrskarandi misserisverkefni sem snéri að „réttarstöðu feðra gagnvart börnum sínum" og einnig vegna rekstraráætlunar vegna fyrirtækis í ferðaþjónustu sem var trúnaðarverkefni. Emilía er altalandi á spænsku og ensku, að viðbættri íslensku, að sjálfsögðu.

Emilía hefur góða þekkingu á útlendingalögum og öðrum málefnum að því tengdu. Hún hefur einnig lokið námskeiði í sáttamiðlun. Hún hefur mikinn áhuga á sifjarétti og málefnum því tengdu. Þegar hún er ekki að vinna þá er sennilegt að rekast á Emílíu í einhvers konar útivist, hvort heldur um er að ræða hjólreiðar, fjallgöngu, skíði eða golf.

Hafðu samband

Hægt er að ná í Emilíu með því að senda henni tölvupóst eða hringja í númerið hér til hliðar. 

+354-517-3100

© 2025 ESJA Legal ehf. 

ESJA Legal ehf.

Hlíðarfæti 15, 102 Reykjavík, Ísland

Email: esl@esl.is

S. +354-517-3100

Kt. 470909-2180

  • White Facebook Icon
bottom of page