

Ómar R. Valdimarsson hrl.
Ómar er hæstaréttarlögmaður með fjölþættan bakgrunn úr hinum alþjóðlega fjölmiðla- og viðskiptaheimi, sem spannar tvo áratugi. Ómar lauk B.Sc.-gráðu í bæði Print Journalism og Broadcast Journalism frá Suffolk University/Emerson College í Boston í Bandaríkjunum árið 2002 og starfaði samhliða námi hjá DV og svo Fréttablaðinu. Eftir að náminu lauk stofnaði hann í kjölfarið Íslensk almannatengsl ehf., sem sinnti almannatengslaráðgjöf fyrir bæði innlend og alþjóðleg fyrirtæki.
Árið 2005 lauk Ómar MA-gráðu í International Relations and History frá London School of Economics, samhliða vinnu. Í kjölfar efnahagshrunsins fór hann aftur í nám og útskrifaðist hann árið 2013 frá Háskólanum í Reykjavík, þá með bæði BA- og ML-gráðu í lögfræði í farteskinu. Ómar var eini fréttamaður Bloomberg News fréttaveitunnar á Íslandi frá árinu 2009 til 2017.
Ómar fékk réttindi til þess að flytja mál fyrir héraðsdómi árið 2015. Þá fékk hann réttindi til að flytja mál fyrir Landsrétti 2021 og Hæstarétti Íslands 2024.
Hafðu samband
Hægt er að ná í Ómar með því að senda honum tölvupóst eða hringja í númerin hér til hliðar.
+354-517-3100 / +354-861-3100

