
Starfshópur stjórnvalda um gervigreind skilaði skýrslu 9. október með 69 tillögum um nýtingu gervigreindar á Íslandi. Gervigreind er orðin hluti af daglegu starfi margra, líka í lögfræði. Hún getur flýtt fyrir yfirferð gagna og gerð draga, en hún getur líka vísað í lagaákvæði eða dóma sem eru ekki til.
Margir íslenskir lögmenn nota gervigreind sem verkfæri, en það er betra að einhver í raunheimum lesi allt yfir áður en það er birt eða því skilað í lokaafurð sem fer frá viðkomandi.
Sama þumalputtaregla á við um notkun einstaklinga á spjallmennum. Það er betra að líta á niðurstöður sem snúa að lagalegum rétti sínum sem byrjunina – en ekki endastöð – og láta svo einhvern holdi klæddan fara yfir málið með sér í kjölfarið.
Ef þú ert í þessari stöðu, þá er einfalt að bóka tíma hjá okkur á www.esl.is