
Foktjón var tilkynnt víða þegar hvassviðri gekk yfir um helgina. Þakplötur fuku í austurhluta borgarinnar og strætóskýli fauk í Breiðholti. Eftir svona veður skiptir máli hvernig fyrstu dagarnir eru nýttir. Sá sem er tryggður á að gera það sem með sanngirni má ætlast til, til að takmarka tjónið. Þá ber tjónþolum að láta tryggingafélagið vita af skaðanum án ástæðulauss dráttar. Sé það vanrækt af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi getur ábyrgð félagsins fallið niður í heild eða að hluta. Hvort tjónið fæst bætt ræðst svo af skilmálum tryggingarinnar og krafa um bætur fyrnist á fjórum árum.
Hafir þú lent í foktjóni um helgina, skaltu gera eftirfarandi:
- Tryggðu lausa hluti;
- Taktu myndir af skemmdunum áður en gert er við þær;
- Geymdu kvittanir; og,
- Tilkynntu tjónið strax.
Ef tryggingarfélagið hafnar kröfunni getur þú heyrt í okkur og pantað ókeypis tíma í lögfræðiráðgjöf á esl.is.