Forsíða · Sérsvið

Sérsvið

Sakamál og refsiréttur

Starfsmenn ESJA Legal ehf. búa að víðtækri þekkingu og áralangri reynslu af meðferð sakamála, allt frá rannsóknarstigi til meðferðar fyrir dómstólum. Við veitum faglega, yfirvegaða og málefnalega ráðgjöf í öllum tegundum refsimála, þar á meðal fíkniefnamálum, ofbeldisbrotum, kynferðisbrotum, fjármunabrotum og umferðarlagabrotum.

Við leggjum ríka áherslu á að vernda réttindi umbjóðenda okkar á öllum stigum málsmeðferðar, hvort sem um ræðir skýrslutökur hjá lögreglu eða fyrir dómi. Við tökum að okkur hagsmunagæslu hvort heldur um er að ræða sakborninga eða brotaþola.

Panta ókeypis viðtal

Panta ókeypis viðtal