Persónuverndarstefna

ESJA Legal ehf., kt. 470909-2180, rekstraraðili vefsíðnanna esl.is og tjonid.is, er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga á báðum vefjum. Stefna þessi byggist á lögum nr. 90/2018 og reglugerð (ESB) 2016/679.

Persónuupplýsingar eru aðeins unnar á grundvelli heimildar í lögum, umboði eða samningi og í þeim tilgangi að veita þá þjónustu sem umbjóðandi hefur óskað eftir. Þeim er haldið öruggum, ekki miðlað nema samkvæmt skýrri heimild, lagaboði eða dómsúrskurði, og eytt eins fljótt og heimilt eða skylt er.

Í slysa- og líkamstjónsmálum er unnið með heilbrigðisupplýsingar þegar það er nauðsynlegt til að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur.

Gögn máls eru varðveitt á meðan málið er til meðferðar og svo lengi sem nauðsynlegt er vegna hagsmuna umbjóðanda, fyrningarfresta eða lagaskyldu. Bókhaldsgögn eru varðveitt í sjö ár.

Aðgangsbeiðnir eru afgreiddar að Hlíðarfæti 15, 102 Reykjavík, gegn fullgildum persónuskilríkjum með mynd. Umsjónarmaður stefnunnar er Ómar R. Valdimarsson, omar@esl.is, sími 517 3100. Kvörtun má senda Persónuvernd.

Stefna þessi var sett 15. júlí 2018 og síðast uppfærð 5. júní 2026.

Panta ókeypis viðtal