
Ómar R. Valdimarsson hrl.
Hæstaréttarlögmaður · eigandi
Ómar er hæstaréttarlögmaður með fjölþættan bakgrunn úr hinum alþjóðlega fjölmiðla- og viðskiptaheimi. Hann lauk B.Sc. í Print Journalism og Broadcast Journalism frá Suffolk University/Emerson College í Boston árið 2002 og starfaði samhliða námi hjá DV og Fréttablaðinu. Að námi loknu stofnaði hann Íslensk almannatengsl ehf.
Árið 2005 lauk hann MA í International Relations and History frá London School of Economics. Hann útskrifaðist árið 2013 frá Háskólanum í Reykjavík með BA- og ML-gráðu í lögfræði. Ómar var fréttamaður Bloomberg News á Íslandi 2009–2017.
Hann fékk réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómi 2015, Landsrétti 2021 og Hæstarétti Íslands 2024.