
Almannavarnir og stjórnvöld kynntu bæklinginn „Verum viðbúin“ þann 3. nóvember sl. og var honum dreift á heimili um allt land. Í bæklingnum eru landsmenn hvattir til að eiga vatn, mat og reiðufé til minnst þriggja daga og búa sig undir rafmagnsleysi. Dómsmálaráðherra minnti á að við berum sjálf ábyrgð á okkar heimili. Sú ábyrgð nær líka til þess að gæta að stöðu þeirra trygginga sem hver og einn er með.
Þær fasteignir sem eru brunatryggðar eru samkvæmt lögum jafnframt tryggðar hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Tryggingin þar nær til tjóns af völdum eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða. Eigin áhætta er þó 2% af hverju tjóni, að lágmarki 400.000 krónur á húseign og 200.000 krónur á innbú.
Það er undir hverjum og einum komið að tryggja að það sem er tryggt fáist bætt, komi til tjóns. Það er best að gera með því að varðveita kvittanir og reikninga af helstu munum, taka af þeim myndir ef reikningar eru ekki tiltækir, og geyma skilmálana á vísum stað. Verði tjón er mikilvægt að tilkynna það eins fljótt og verða má, þar sem réttur til bóta getur fallið niður, sé tjón tilkynnt of seint.
Ef þú vilt fara yfir réttarstöðuna þína getur þú haft samband við okkur á esl.is.