Forsíða · Fréttir

26. október 2026

2.217 mál vegna tilbúinna heimilda

2.217 mál vegna tilbúinna heimilda

Gagnagrunnur Damiens Charlotin heldur utan um dóma og úrskurði þar sem dómstóll fjallar um notkun gervigreindar í málsgögnum, einkum tilbúnar tilvísanir í dóma og heimildir sem eru ekki til. Við síðustu uppfærslu, 25. október, voru málin orðin 2.217, og í 879 þeirra áttu lögmenn í hlut. Gervigreind er gagnlegt hjálpartæki en hún getur fullyrt af fullu öryggi um dóm sem aldrei féll. Við ESJA Legal notum stundum gervigreind til að flýta fyrir, en við vísum aldrei í dóm eða lagagrein í okkar gögnum nema að lögmaður hafi áður lesið textann í heild sinni. Og hvernig er þá best fyrir neytendur eða forsvarsmenn fyrirtækja að nýta sér kosti gervigreindarinnar? Jú, það er sniðugt að nota gervigreind til þess að fá einhver svör til að byrja með, en það er mikilvægt að láta gervigreindina svara því hvaðan upplýsingarnar eru fengnar og kanna svo sjálfur hvort heimildirnar stemmi við niðurstöðuna sem maður fékk.

Ef þú vilt ræða málin þá er fyrsta viðtalið hjá ESJA Legal ókeypis og hægt er að panta tíma á esl.is.