
Í vikunni var umræða um hvort gervigreind ætti að koma nálægt lokaafurð fyrirtækja sem hana nota. Eftir því sem næst verður komist var niðurstaðan sú að málið snúist alltaf frekar um dómgreind en gervigreind.
Við erum sammála.
Í störfum lögmanna getur gervigreind nýst við að lesa í gegnum gögn, draga saman dóma og aðrar réttarheimildir og jafnvel setja upp tímalínu. Undirbúningurinn getur verið vélrænn. Yfirlesturinn og ábyrgðin eru það ekki.
Lögmenn geta ekki látið gervigreind skrifa það sem þeir senda á endanum frá sér — og því síður bera ábyrgð á störfum sínum. Ábyrg notkun felur það í sér að hvert einasta orð er lesið yfir af manneskju sem staðreynir hverja tilvísun og setur nafnið sitt undir.
Ef þú ert að leita lögmannsaðstoðar og færð tilboð skaltu spyrja: Hver les yfir? Svarið segir þér meira en tímagjaldið.