Forsíða · Fréttir

13. febrúar 2026

Löglegt lyf — ólöglegur akstur

Löglegt lyf — ólöglegur akstur

Á hverjum einasta degi vakna þúsundir Íslendinga, taka ADHD-lyfin sín, skutla börnunum í skólann og aka í vinnuna. Næstum allir þessara einstaklinga eru einu stoppi hjá lögreglu frá því að missa bílprófið í allt að 18 mánuði.

Samkvæmt 50. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er sá sem er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja óhæfur til að stjórna ökutæki. Mælist lyfið í blóði telst ökumaður óhæfur. Án læknisvottorðs og lyfjaskírteinis getur það kostað bílprófið í allt að 18 mánuði.

Í 8. mgr. 101. gr. er undanþága, en aðeins ef ökumaður hefur gilt vottorð um hæfni til aksturs þrátt fyrir lyfjanotkun og lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands.